Silja Magnúsdóttir
fékk löggildingu sem klínískur sálfræðingur frá Háskólanum í Osló 2004.
Silja starfaði sem sálfræðingur hjá Geðhjálp við greiningar og lausnarmiðaða ráðgjöf/ meðferð fyrir fjölbreyttan hóp skjólstæðinga. Silja leiddi ýmis konar hópa, s.s. kvíðahóp, þunglyndishóp, aðstandendahóp og stuðningshópa. Einnig hefur Silja haldið sjálfsstyrkingar- og félagsfærninámskeið og námskeið í streitustjórnun og slökun.
Í Danmörku starfaði Silja við fjölskylduráðgjöf og sem skólasálfræðingur. Þar sinnti hún ráðgjöf og meðferð barna, unglinga og foreldra auk hefðbundinna verkefna tengd sérfræðiþjónustu skóla.
Einnig hefur Silja starfað við Hælisleitendateymi Útlendingastofnunnar hjá Reykjavíkurborg og þá mest sinnt fjölskyldum. Að auki hefur Silja starfað við sérfræðiþjónustu skóla hjá Reykjavíkurborg.
Hjá Sálfræðiráðgjöfinni sinnir Silja ráðgjöf og meðferð við til dæmis;
Þunglyndi
Streitu og kulnun (burnout)
Kvíða og óróleika
Lágu sjálfsmati
Áföllum
Námserfiðleikum
ADHD
Hegðunarvanda
Samskiptavanda
Silja sinnir fullorðnum, ungmennum og pörum.
Bókun viðtalstíma og/eða fyrirspurnir í síma 612 5912
Netfang: silja.magnusdottir@gmail.com