Anna Guðrún Guðmundsdóttir - Sálfræðingur
Anna Guðrún er klínískur sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni en starfar einnig hjá nemendaráðgjöf Háskóla Íslands.
Anna beitir aðferðum hugrænnar atferlismeðferar (HAM) auk áherslum úr ACT (Acceptance and Commitment Therapy) og hefur hlotið þjálfun í hugrænni úrvinnslumeðferð (HÚM).
Anna starfar með fullorðnum sem kljást m.a. við:
-
Þunglyndi og fæðingarþunglyndi
-
Kvíða og áhyggjuvanda
-
Áfallastreitu
-
Langvinna streitu
-
Langvinna verki (sérstaklega vegna endómetríósu)
Anna starfaði áður hjá Landspítala á árunum 2021-2025, fyrst í þunglyndis- og kvíðateymi geðsviðs og síðar í endómetríósuteymi kvennadeildar. Einnig starfaði hún áður í geðteymi fullorðinna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) 2020-2021.
Hafðu samband
Hafðu samband við Önnu Guðrúnu til þess að bóka tíma í síma eða í gegnum tölvupóst.
Sími: 7834024

