top of page
Erla Björnsdóttir_edited.jpg

Dr. Erla Björnsdóttir

  • Meðferð við svefnvanda

  • Parameðferð

  • Meðferð við kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati

  • Rannsóknir og fyrirlestrar um svefn

  • Facebook

Dr. Erla Björnsdóttir

Erla lauk B.A prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007 og kandídatsprófi frá Háskólanum í Árósum 2009. Erla lauk svo doktorsprófi í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands í janúar 2015. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. 

 

Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsmönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi.

 

Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða og má þar helst nefna fyrirlestra og fræðslu um svefn og svefnvenjur fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að vera með hópnámskeið við svefnleysi. Erla hefur einnig umsjón með www.betrisvefn.is þar sem boðið er uppá hugræna atferlismeðferð við svefnleysi í gegnum internetið.

 

Hjá sálfærðiráðgjöfinni sinnir Erla meðferð við svefnleysi, þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati og öðrum tilfinningavanda. Erla bíður einnig uppá pararáðgjöf.

er sálfræðingur og einn af þremur rekstraraðilum Sálfræðiráðgjafarinnar.

Hafðu samband

Hafðu samband við Erlu til þess að bóka tíma í síma eða í gegnum tölvupóst.

Sími: 860-8009

bottom of page