top of page
Fjóla K_edited_edited.jpg

Fjóla Katrín Steinsdóttir

  • ​Víðtæk reynsla við meðferð þunglyndis- og kvíðaraskana

  • ​Áföll, streita og lágt sjálfsmat

  • Notast við aðferðir Hugrænnar atferlismeðferðar

  • Facebook

Fjóla Katrín Steinsdóttir - Sálfræðingur

Fjóla Katrín er sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni en starfar nú einnig í þunglyndis- og kvíðateymi Landspítala. 

 

Fjóla  lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2008 og Cand.psych gráðu í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2011. Hún hefur starfað sem sálfræðingur síðan þá. Fjóla hefur víðtæka reynslu af því að vinna með fólki með mismunandi tilfinningavanda. Hún hefur starfað sem sálfræðingur í mismunandi teymum innan geðþjónustu Landspítalans í 10 ár þar sem hún hefur sinnt bæði einstaklings- og hópmeðferðum. Fjóla hefur einnig starfað sem sálfræðingur í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún var bæði með fræðslu og einstaklingsviðtöl fyrir fólk í krefjandi námi. Fjóla tók nýlega við sem teymisstjóri þunglyndis- og kvíðateymis Landspítala og verkefnastjóri sálfræðinga á meðferðareiningu lyndisraskana Landspítala. 

 

Fjóla vinnur með kvíða, depurð, lágt sjálfsmat, áföll og streitu með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.

Hafðu samband

Hafðu samband við Fjólu til þess að bóka tíma í síma eða í gegnum tölvupóst.

Sími: 866 0535

bottom of page