Smári Rúnu Jónsson - Sálfræðingur
Smári er sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni en starfar einnig á fíknigeðsviði Landspítala.
Smári lauk BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 2016 og MS-gráðu í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands 2021. Áður starfaði hann sem sálfræðingur á bráðamóttöku geðsviðs Landspítala, sem sálfræðingur í áfallateymi, og í þunglyndis- og kvíða teymi á geðsviði Landspítala og sem starfsmaður í búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Starfsnám Smára fór fram á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis.
Smári sinnir einstaklingsmeðferð fullorðinna og beitir aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar við ýmsum sálrænum vanda. Helst ber að nefna:
-
Fíknivanda
-
Þunglyndi
-
Áhyggjuvanda og kvíða
-
Tilfinningavanda
-
Áfallastreitu
-
Lágt sjálfsmat
-
Áráttu- og þráhyggju
-
Heilsukvíða
Hafðu samband
Hafðu samband við Gunnar Smáratil þess að bóka tíma í síma eða í gegnum tölvupóst.
Sími: 769-6415

