Guðný Björg Barkardóttir - Sálfræðingur
Guðný Björg er sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni og starfar auk þess hjá Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands.
Hún lauk M.Sc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2023 og hefur einnig lokið 60 einingum í meistaranámi í megindlegri sálfræði við Háskóla Íslands. Guðný Björg hefur unnið mikið með áfallastreitu og fengið mikla handleiðslu í slíkum málum í fyrri störfum. Einnig hefur hún unnið töluvert með kvíða, áhyggjur, lágt sjálfsmat og tilfinningavanda.
Guðný Björg hefur unnið mikið með unglingum, m.a. hjá Barna- og fjölskyldustofu og Barnavernd. Hún býður upp á meðferð fyrir fullorðna sem og unglinga frá 16 ára aldri.
Í meðferð notar Guðný Björg gagnreyndar aðferðir, þá helst Hugræna atferlismeðferð (HAM) og Hugræna úrvinnslumeðferð (e. cognitive processing therapy). Auk þess notast hún við aðferðir Díalektískar atferlismeðferðar (DAM).
Hægt er að bóka tíma hjá Guðnýju Björgu á Noona eða með því að senda tölvupóst.
Hafðu samband
Hafðu samband við Guðnýju til þess að bóka tíma í gegnum tölvupóst eða Noona.
