top of page
Hjalti.jpg

Hjalti Jónsson

  • Börn og ungmenni með tilfinninga- og hegðunarvanda

  • Fyrirlestrar fyrir kennara og foreldra barna 

  • Tilfinningavandi fullorðinna - Hugræn atferlismeðferð

  • Fjarviðtöl í gegnum Karaconnect

  • Facebook

Hjalti Jónsson

Hjalti lauk Cand Psych prófi frá Háskóla Íslands árið 2012 og hefur starfað sem sálfræðingur síðan þá. Hjalti hefur víðtæka reynslu af því að vinna með börnum og ungu fólki í tilfinningavanda. Hann starfaði sem skólasálfræðingur Verkmenntaskólans á Akureyri í fjögur ár og hefur þjónustað marga grunnskóla og sveitarfélög á Norðurlandi allt til dagsins í dag.

 

Hjalti býður einnig upp á fjarþjónustu í gegnum Karaconnect.com sem veitir fólki sem býr fjarri sálfræðiþjónustu tækifæri til þess að sækja sér hana óháð búsetu. 

Hér er hægt að bóka tíma beint í gegnum karaconnect: https://go.karaconnect.com/request/55


Hjalti vinnur með kvíða, depurð, lágt sjálfsmat, áföll og streitu eftir aðferðum Hugrænnar atferlismeðferðar.
 
Meðfram klínískri vinnu hefur hann haldið fyrirlestra um kvíða og depurð ungs fólks víðsvegar um landið og haldið hópnámskeið í hugrænni atferlismeðferð við kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati.

Hafðu samband

Hafðu samband við Hjalta til þess að bóka tíma í síma eða í gegnum tölvupóst.

Sími: 8216807

bottom of page