top of page

Kristín Hulda Gísladóttir

  • Einstaklingsmeðferð fullorðinna

  • Kvíði, þunglyndi, lágt sjálfsmat, fullkomunarárátta

  • Veikindi og aðstandendur sjúklinga

  • Líknarsálfræði

  • Facebook

Kristín Hulda Gísladóttir - Sálfræðingur

Kristín Hulda er sálfræðingur hjá sálfræðiráðgjöfinni og starfar samhliða því sem sálfræðingur hjá Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands.

 

Kristín Hulda lauk meistaranámi í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og meistaranámi í félags- og menningarsálfræði frá London School of Economics árið 2022. Hún starfaði um tíma á móttökugeðdeild Landspítalans og sinnti þar mest alvarlegum þunglyndismálum og einstaklingum í sjálfsvígshættu. Hún starfaði einnig um árabil hjá Ljósinu, stuðnings- og endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

 

Kristín Hulda notast fyrst og fremst við aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og starfar með fullorðnum og börnum yfir 15 ára sem kljást m.a. við:

-Þunglyndi

-Kvíða

-Lágt sjálfsmat

-Námsörðugleika
-Veikindi (sjálf eða í nærumhverfi)

-Ólæknandi eða banvæna sjúkdóma

 

Hafðu samband

Hafðu samband við Kristínu Huldu í gegnum tölvupóst til þess að bóka tíma eða hér:

noona.is/kristinhuldasalfraedingur

bottom of page